Færsluflokkur: Bloggar

Þvílík steypa!

Því er haldið fram af minnihlutastjórn Jóhönnu Sigurðardóttir að Sjálfstæðisflokkurinn haldi þinginu í gíslingu, þvílík steypa. Hann hefur þvert á móti ítrekað lýst yfir vilja til að taka fyrir og afgreiða þau brýnu mál er snúa að endurreisn atvinnulífsins og heimilanna í landinu. Það er sorglegt að stjórnarflokkarnir skuli gera stjórnarskrá lýðveldisins að peði í pólitísku valdatafli sínu í stað þess að vinna að því að endurreisa íslenskt atvinnulíf.

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon héldu því fram á blaðamannafundi sínum að sjálfstæðismenn stunduðu málþóf og gagnrýndu það. Mér finnst gagnrýni þeirra athyglisverð í ljósi þess að þarna tala margfaldir Íslandsmeistarar í greininni.

Steingrímur blessaður kallinn hefur verið ræðukóngur Alþingis á undanförnum þingum og ekki hefur Jóhanna slegið slöku við á enn metið fyrir lengstu ræðuna í sögu þingsins. Það gerði hún vorið 1998 þegar hún talaði í tíu klukkustundir og átta mínútur um húsnæðisfrumvarp þáverandi félagsmálaráðherra.Þá voru og ræður þáverandi stjórnarandstöðu í fjölmiðlamálinu, RÚV-málinu, vatnalögum og í umræðum um EES-samninginn margfalt lengri en umræðan um stjórnarskrána nú. Og dæmi nú hver fyrir sig!


Hvar er lýðræðið núna

Svo mikið liggur á að koma stjórnarfrumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórnarskránni í gegnum þingið að allt annað er aukaatriði. Hvað er svona rosalega mikilvægt í þessari stjórnarskrábreytingu að allt annað er látið sitja á hakanum. Ég hélt í einfeldni minni að þessir ágætu menn sem mynduðu síðasta stjórnarsamstarf að annað gengi fyrir svo sem eins og að endurreisa bankakerfið svo atvinnulífið kæmist í gang. Núna er Davíð blessaður ekki að þvælast fyrir Jóhönnu og co. En þá virðist bara allt loft farið úr öllum og ekkert er að gerast sem er bitastætt og kemur sér vel fyrir fólk sem er á síðasta snúning með greiðslur og jafnvel komið í vanskil. Ég hélt að allir þyrftu að vera sammála bæði stjórnarandstaða og ríkisstjórn þegar svona mikilvægar ákvarðanir eru teknar sem í raun koma okkur öllum við sem enn búum á þessu skeri, en ekki bara reynt að koma þessu í gegn með góðu eða illu. Þess vegna spyr ég hvar er lýðræðið núna?

Kosningar nálgast og allir fá þá eitthvað fallegt!

Það er ekki hægt að segja annað en að Ögmundur Heilbrigðisráðherra fari mikinn nú um þessar mundir, það er öllu sem forveri hans var búinn að gera snúið við. Ekki veit ég hvernig ráðherrann ætlar að borga brúsann en það er öruggt eins og ég sit hér og skrifa þetta að það kemur að skuldadögum.  Og hver á þá að borga. 


Dagurinn í dag var góður

Tjaldurinn er kominn og mér skilst að það hafi heyrst í Lóunni á Klaustri, en hún er örugglega á leiðinni hingað í Fljótshlíðina. Það var frábært veður í dag allavega fram eftir degi. Fór á Selfoss þar sem ég var á kjördæmisfundi sem var alveg frábær,Smile  þar var listi okkar manna samþykktur, enda bara röð af frábæru fólki á listanum, sem örugglega á eftir að standa sig með heiðri og sóma í komandi kosningum sem styttist óðum í.

Get ekki á mér setið.

Hvernig getur forsætisráðherra sagt að arðgreiðslur séu siðlausar mér er spurn. Hvað með þá sem kjósa að hafa peninga sína örugga inn á bankabók með 18% vöxtum er það ekki arðgreiðsla sem fenginn er með því . Af hverju blæs ekki ráðherrann yfir því. Ef enginn vill setja peninga sína í áhættufjárfestingar hvar væru fyrirtæki þá stödd, þá þyrfti Jóhanna allavega ekki að hafa nein orð um siðleysi því það væru engin fyrirtæki. Ég mæli með að Jóhanna kynni sér rekstur á fyrirtækjum áður en hún lætur svona bull út úr sér sem er bara sorglegt og lýsir með endemum hvað ráðherra veit lítið um rekstur fyrirtækja.
mbl.is Starfsfólkið fær 13.500 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband